Gullrósa tjáir sig um allt og ekkert...

Friday, September 22, 2006

Saumó...

Saumó hjá Frú Sollu í gær. Aldeilis huggulegt og gaman að hitta stelpurnar! Solla greyið var búin að standa sveitt í eldhúsinu frá því um klukkan 10 um morguninn! Segi bara takk fyrir mig! :) Verðum endilega að hittast oftar. Meðal umræðuefna kvöldsins voru brúðkaup, ólétta, fæðingar og kynlífsdraumar. ;) Held það væri ekki óvitlaust að setja á fót veðbanka og veðja á hver sé næst í röðinni til að gifta sig eða eignast barn! En jæja, skyldan kallar. Þarf víst að fara upp á hlöðu og ljósrita 4 greinar eða svo. Annars finnst mér ég vera búin með ljósritunarkvótann minn fyrir lífstíð! Mér finnst ég ekki hafa gert annað í mörg ár! Ég þarf að greinilega að fara ráða aðstoðarmann! ;)

2 Comments:

  • At 6:56 AM, Anonymous Anonymous said…

    það líður ekki á löngu þar til þú færð þina eigin ljosritunarkonu... nei meinti aðstoðarkonu... ;)

    getur ekki fengið indigo stelpuna til þess;)

     
  • At 1:10 PM, Anonymous Anonymous said…

    Jebb, Hanna heldur næst og nokkrar koma með meðlæti. Solla þú ert stikkfrí...

    Já, maður þyrfti að verða sér út um svona útsaumsdót. ;)

    Kveðja,
    Mangó

     

Post a Comment

<< Home